Fotbolti.net
19.07.26 - 14:57
Brynjar Ingi Erluson

Mbappe sama um markametið: Höfum ekki efni á því að vera mennskir

Kylian Mbappe

Kylian Mbappe

Canon

Mynd: EPA

Kylian Mbappe, markahæsti leikmaður í sögu heimsmeistaramótsins, segist vera alveg sama um markakóngstitilinn og myndi hann glaður skipta honum út fyrir sæti í úrslitum.
Mbappé orðinn markahæstur í sögu HM
TENGT EFNI

Mbappé orðinn markahæstur í sögu HM

Kylian Mbappe skoraði tvö mörk í ótrúlegu 6-4 tapi Frakka gegn Englendingum í bronsleik HM í gær.

Með mörkunum tveimur varð Mbappe markahæsti leikmaður í sögu heimsmeistaramótsins með 22 mörk, einu meira en Lionel Messi hefur skorað fyrir Argentínu.

Markametið er þó ekki efst í huga Mbappe, sem segist mun frekar hafa viljað leika til úrslita. Hann býst auk þess við því að Messi komist á blað í úrslitaleiknum í kvöld.

„Ef ég á að vera hreinskilinn hefði ég frekar viljað sleppa því að verða markahæstur og vera í úrslitaleiknum í staðinn. Svo mun Lionel Messi skora. Hann skilar alltaf sínu,“ sagði Mbappe.

Frakkar voru sjálfum sér ekki líkir í fyrri hálfleiknum gegn Englendingum og voru 4-0 undir í hálfleik. Mbappe sagði liðið einfaldlega hafa verið mennskt, en að Frakkar mættu ekki við slíkri frammistöðu.

„Það var algjörlega slökkt á okkur en þeir vöktu okkur svo sannarlega til lífsins.“

„Að við höfum vanvirt landsliðstreyjuna í fyrri hálfleik? Ég myndi frekar segja að við höfum verið mennskir. Því miður höfum við hins vegar ekki efni á því að vera það,“ sagði Mbappe.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.