Fotbolti.net
19.07.26 - 16:55
Brynjar Ingi Erluson

Nýfrægi markvörðurinn fer líklega ekki til Síle

Nýfrægi markvörðurinn fer líklega ekki til Síle
Canon

Mynd: EPA

Vozinha, markvörðurinn sem stal hug og hjörtum fólks um allan heim með Grænhöfðaeyjum á heimsmeistaramótinu, mun líklega ekki semja við Colo Colo í Síle.
Vozinha og aðrir markverðir sem urðu költhetjur á HM
TENGT EFNI

Vozinha og aðrir markverðir sem urðu költhetjur á HM

Vozinha, fertugur markvörður Grænhöfðaeyja, fór á kostum á heimsmeistaramótinu þegar liðið tryggði sér sæti í 32-liða úrslitum.

Hann skaust fram á sjónarsviðið í fyrstu umferð riðlakeppninnar þegar hann lokaði búrinu í markalausu jafntefli gegn ríkjandi Evrópumeisturum Spánar.

Vozinha fékk milljónir nýrra fylgjenda á Instagram í kjölfarið en athyglin virtist ekki trufla hann inni á vellinum.

Fjölmörg félög hafa sýnt honum áhuga eftir mótið, einkum frá Suður-Ameríku. Fabrizio Romano greindi frá því að Vozinha ætti í viðræðum við Colo Colo, sigursælasta félag í sögu Síle.

Viðræðurnar eru hins vegar komnar í uppnám og allt útlit er fyrir að ekkert verði af félagaskiptunum. Colo Colo reynir nú að fá Santiago Mele til liðs við sig í staðinn.

Vozinha lék með Chaves í portúgölsku B-deildinni á síðasta tímabili en samningur hans rann út um síðustu mánaðamót.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.