19.08.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Celades til Bordeaux. (Staðfest)




Miðjumaður Real Madrid, Albert Celades hefur verið lánaður til Bordeaux út þetta tímabil. Celades sem fæddist í Andorra en er spænskur hefur lítið spilað með Real Madrid seinustu ár enda margir góðir miðjumenn fyrir hjá Real Madrid. Hinn 27 ára Celades verður sjöundi leikmaðurinn sem kemur til Bordo nú í sumar. Annar miðjumaður hjá Bordo, Camel Meriem sem er 23 ára hefur hinsvegar farið til Olympique Marseille á láni út þetta tímabil.
