Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mán 19. október 2020 19:03
Ívan Guðjón Baldursson
Svíþjóð: Ótrúleg endurkoma Djurgarden gerði út um Malmö
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Djurgården 3 - 2 Malmö
0-1 Ola Toivonen ('18)
0-2 Ola Toivonen ('62)
1-2 F. Ulvestad ('81)
2-2 K. Holmberg ('82)
3-2 K. Holmberg ('89)

Ola Toivonen skoraði tvennu fyrir Malmö sem heimsótti Djurgården í sænska boltanum í dag.

Arnór Ingvi Traustason kom inn skömmu eftir seinna markið og fékk að spila síðasta hálftíma leiksins.

Á lokakaflanum áttu heimamenn í Djurgården ótrúlega endurkomu sem byrjaði á skallamarki eftir hornspyrnu á 81. mínútu. Mínútu síðar jafnaði Kalle Holmberg eftir aðra hornspyrnu og þá opnaðist leikurinn. Bæði lið leituðu að sigurmarkinu og var allt lagt í sölurnar.

Það voru heimamenn sem fundu sigurmarkið á 89. mínútu leiksins. Holmberg var aftur mættur fyrir framan markið og skoraði auðveldlega.

Lokatölur 3-2 og er þetta þriðja tap Malmö á tímabilinu. Malmö er með átta stiga forystu á toppi deildarinnar þegar sex umferðir eru eftir.

Helsingborg 0 - 0 Häcken

Óskar Tor Sverrisson var þá ónotaður varamaður er Häcken gerði markalaust jafntefli við fallbaráttulið Helsingborg.

Häcken hefur verið að gera frábæra hluti í ár og er í þriðja sæti sem stendur, jafnt Norrköping og Elfsborg á stigum í baráttunni um Evrópusæti.
Athugasemdir
banner
banner