19.11.26 - 19:30
Ívan Guðjón Baldursson
Íslendingar á lista með stórstjörnum í Þjóðadeildinni

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Þegar tölfræði úr Þjóðadeildinni er skoðuð eru nokkrir Íslendingar sem sköruðu fram úr og þá sérstaklega Hákon Arnar Haraldsson.
Ísland vann auðveldan riðil í C-deild til að tryggja sér sæti í B-deild Þjóðadeildarinnar á næstu leiktíð.
Hákon Arnar var meðal bestu leikmanna deildatímabilsins í ýmsum þáttum. Hann er í þriðja sæti í tölfræði yfir heppnaðar stungusendingar með 6 talsins, þar kemur hann á eftir stórstjörnunum Lamine Yamal og Martin Ödegaard sem áttu flestar stungusendingar í deildakeppninni eða 8 á haus. Þá átti Jude Bellingham líka 6 stungusendingar eins og Hákon.
Hákon er þá í öðru sæti yfir heppnaðar sendingar í vítateig andstæðinganna með 18 talsins, fjórum sendingum minna heldur en Michael Olise.
Þegar tölfræði er skoðuð yfir leikmenn sem vinna boltann oftast aftur fyrir sitt lið þá er Hákon langefstur. Hann vann boltann til baka 50 sinnum, tólf sinnum oftar heldur en næsti maður á lista. Elliot Anderson vann boltann til baka 36 sinnum með enska landsliðinu og gerði Sander Berge slíkt hið sama með Noregi.
Hákon kemst þá á lista yfir stoðsendingahæstu leikmenn ásamt Orra Steini Óskarssyni, með þrjár stoðsendingar á haus. Orri Steinn kemst auk þess á lista yfir menn sem áttu flestar snertingar í vítateigum andstæðinganna. Hann snerti boltann 36 sinnum innan teigs og kemur þar skammt á eftir Yamal og Erling Haaland.
Hákon Rafn Valdimarsson hélt oftast hreinu eða fimm sinnum í sex leikjum, alveg eins og Pierce Charles gerði á milli stanga Norður-Írlands.
Guðlaugur Victor Pálsson er þá í 3.-5. sæti yfir leikmenn sem unnu flest skallaeinvígi, eða 21 talsins.
Andri Lucas Guðjohnsen er að lokum í 2.-6. sæti yfir markahæstu leikmenn deildakeppninnar með 6 mörk, tveimur minna en Harry Kane. Andri Lucas er jafn Erling Haaland, Rasmus Höjlund, Viktor Gyökeres og Troy Parrott í markaskorun.
Til gamans má geta að Gunnar Vatnhamar, landsliðsmaður Færeyja og fyrrum leikmaður Víkings R., kemst á lista yfir menn með flestar hreinsanir eftir að hafa hreinsað boltann 39 sinnum í Þjóðadeildinni í haust. Þá kemst Gunnar einnig á lista yfir menn sem unnu flest skallaeinvígi - eða 18 talsins.

The 2026/27 Nations League stat leaders. ????
— Squawka (@Squawka) November 18, 2026
Swipe for the top 10 players across a host of different metrics.???? https://t.co/Az9vj7a6Qz

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson