Fotbolti.net
19.11.26 - 19:00
Ívan Guðjón Baldursson

Pochettino: Leikmenn verða að finna fyrir frelsi

Pochettino: Leikmenn verða að finna fyrir frelsi
Canon

Mynd: EPA

Mauricio Pochettino hefur verið duglegur að mæta í viðtöl á fyrstu dögunum sem nýr aðalþjálfari Manchester United.
Pochettino kallar eftir hugrekki frá Man Utd
TENGT EFNI

Pochettino kallar eftir hugrekki frá Man Utd

Hann er gríðarlega spenntur fyrir starfinu og er fyrsti leikur hans við stjórnvölinn klassískur stórleikur á útivelli gegn Liverpool á sunnudaginn.

„Þegar maður fær tilboð að taka við þjálfun hjá Manchester United þá getur maður ekki hafnað því. Þetta er sannur heiður og forréttindi, ég get ekki beðið eftir að hefja leik," segir Pochettino, sem er bjartsýnn á framtíðina.

„Það eru mistök að einblína of mikið á núverandi stöðu, við verðum að geta séð möguleikana sem þetta félag hefur í framtíðinni. Við erum að spila leik og til þess að geta tengst leiknum þá verðum við að finna fyrir frelsi. Við verðum að elska leikmennina okkar og styðja við þá með að gefa þeim tólin sem þeir þurfa til að standa sig vel.

„Leikmönnum verður að líða vel, það er mikilvægt að þeir finni fyrir frelsi til að sýna áhorfendum hæfileika sína á vellinum. Okkar starf er að skapa andrúmsloftið sem þarf svo leikmenn geti notið sín og spilað upp á sitt besta.

„Því fylgir mikil pressa og ábyrgð að vera partur af þessu félagi og við verðum að láta það gefa okkur orku. Við ætlum ekki að sóa neinum tíma og viljum vera upp á okkar besta strax þegar við heimsækjum Anfield."


Man Utd er afar óvænt í fallsæti þegar Pochettino tekur við, eftir að hafa endað í þriðja sæti á síðustu leiktíð.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.