Fotbolti.net
19.11.26 - 21:00
Ívan Guðjón Baldursson

Viktor og Markús mjög efnilegir í FM27

Viktor og Markús mjög efnilegir í FM27
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

FM Scout birti lista yfir 850 af efnilegustu leikmönnunum í nýja Football Manager leiknum sem kom út fyrir rúmri viku síðan.
Vísir fór yfir listann og fann tvo íslenska leikmenn á honum, þá Viktor Bjarka Daðason og Markús Andra Daníelsson Martin.

Viktor Bjarki fær 82 af 100 í mögulega einkunn á meðan Markús Andri fær 77. Ungstirnin geta náð þessum tölum með réttri þjálfun og spiltíma í leiknum.

Viktor er 18 ára gamall og leikur sem framherji hjá FC Kaupmannahöfn. Hann er á lista FM Scout annað árið í röð eftir að hafa vakið athygli með frammistöðu sinni í dönsku deildinni og Meistaradeildinni á síðustu leiktíð.

Markús er 16 ára miðvörður sem skipti yfir til AZ Alkmaar í sumar eftir að hafa alist upp í Hamri í Hveragerði. Hann lék einn leik með Stjörnunni í sumar áður en hann var fenginn til Hollands.

Viktor og Markús eiga samtals 56 landsleiki að baki fyrir yngri landslið Íslands.

Football Manager er geysivinsæll leikur sem á sér langa sögu en hefur af ýmsum ástæðum lent í vandræðum á síðustu árum og gaf til að mynda ekki út leik þegar FM25 átti að koma út. FM26 fékk svo mikla gagnrýni þegar hann kom út.

Bjarki Hrafn Garðarsson, sem er að raða inn mörkum með unglingaliði Borussia Dortmund, er ekki á listanum ásamt fleirum unglingalandsliðsmönnum Íslands.

Heimild: Vísir

Viktor og Markús mjög efnilegir í FM27
Canon

Mynd: AZ Alkmaar

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.