19.11.26 - 19:50
Ívan Guðjón Baldursson
Meistaradeild kvenna: Glódís aftur í byrjunarliði - Dramatískt tap í Frakklandi

Mynd: EPA

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Mynd: EPA

Tveimur fyrstu leikjum dagsins er lokið í Meistaradeild kvenna og var Glódís Perla Viggósdóttir aftur í byrjunarliði stórveldis FC Bayern.
Glódís Perla er fyrirliði Bayern en meiddist í lok október og var að taka sín fyrstu skref aftur í keppnisleik í dag. Hún lék fyrstu 58 mínúturnar í þægilegum sigri á útivelli í Vín.
Glódís og stöllur héldu hreinu og skópu fjögurra marka sigur. Bayern er með 11 stig eftir fimm umferðir í deildarkeppni Meistaradeildarinnar.
Emelía Óskarsdóttir kom þá inn af bekknum er Danmerkurmeistarar HB Köge heimsóttu Paris FC. Köge náði forystunni snemma leiks en þær frönsku voru sterkara liðið í opnum og skemmtilegum slag.
Paris náði að jafna fyrir leikhlé og hélst staðan jöfn allt þar til vítaspyrna var dæmd seint í uppbótartíma. Celina Ould Hocine steig á punktinn en lét verja frá sér. Hún var heppin að boltinn barst aftur til hennar svo hún gat skorað það sem reyndist sigurmark leiksins úr frákastinu.
Köge er aðeins með fjögur stig eftir fimm umferðir og þarf helst sigur á heimavelli gegn Benfica í lokaumferðinni til þess að detta ekki úr leik.
Austria Vín 0 - 4 FC Bayern
0-1 Klara Buhl ('27)
0-2 Pernille Harder ('45+1)
0-3 Alara Sehitler ('75)
0-4 Sophia Proost ('92)
Paris FC 2 - 1 HB Köge
0-1 Catherine Paulson ('12)
1-1 Sheika Scott ('35)
1-1 Celina Ould Hocine, misnotað víti ('94)
2-1 Celina Ould Hocine ('94)