Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 20. janúar 2020 20:11
Brynjar Ingi Erluson
Werner vill ganga til liðs við Liverpool í sumar
Timo Werner vill spila með Liverpool
Timo Werner vill spila með Liverpool
Mynd: Getty Images
Timo Werner, framherji RB Leipzig í Þýskalandi, vonast til þess að ganga til liðs við enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool í sumar en BILD greinir frá þessu.

Werner er 23 ára gamall og hefur verið ótrúlegur með Leipzig síðustu ár en hann hefur gert 80 mörk í 140 leikjum með liðinu eða frá því hann kom frá Stuttgart árið 2016.

Hann er með 20 mörk í 18 deildarleikjum á þessu tímabili og hefur þá tvisvar verið valinn leikmaður mánaðarins.

Werner hefur verið orðaður við mörg stórlið undanfarið en samkvæmt þýska miðlinum BILD þá vill hann ganga til liðs við Liverpool í sumar.

Hann er falur fyrir 60 milljónir evra en talið er að Jürgen Klopp, stjóri Liverpool, hafi mikinn áhuga á því að fá Werner til félagsins.

Werner hefur spilað 29 landsleiki fyrir Þýskaland og skorað 11 mörk í þeim.
Athugasemdir
banner
banner
banner