Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 20. janúar 2022 11:00
Elvar Geir Magnússon
Ferdinand hneykslaður á vali Keown á manni leiksins
Keown valdi Diogo Dalot.
Keown valdi Diogo Dalot.
Mynd: Getty Images
Rio Ferdinand varð hneykslaður á vali Martin Keown á manni leiksins í sigri Manchester United gegn Brentford í gær. Keown lýsti leiknum og valdi portúgalska hægri bakvörðinn Diogo Dalot bestan.

„Ég trúði því ekki þegar Martin valdi Dalot mann leiksins. Scott McTominay bar höfuð og herðar yfir alla á vellinum. Ég sendi Martin SMS skilaboð og spurði hvað væri eiginlega í gangi!" segir Ferdinand.

McTominay lék sem sexa í 4-3-3 kerfi Manchester United en Ralf Rangnick er búinn að leggja 4-2-2-2 kerfið á hilluna. Skoski landsliðsmaðurinn sýndi mikla vinnusemi.

„Ég hitti hann á veitingastað í síðustu viku og spjallaði stuttlega við hann. Hann talaði um mikilvægi þess að leggja sig allan fram og vinna fyrir liðið, það er það eina sem maður heyrir frá honum. Hann er heiðarlegur strákur sem vill gera vel og bæta sig," segir Ferdinand.

„Þú þarft vissa hæfileika til að spila fyrir Manchester United en persónuleiki og karakter eru það sem koma þér í gegn og gera það að verkum að þú ert lengi hjá félaginu."
Athugasemdir
banner
banner