Fotbolti.net
20.02.18 - 13:30
Magnús Már Einarsson

Sonur Drogba til Guingamp (Staðfest)

Didier Drogba.

Didier Drogba.

Canon

Mynd: Getty Images

Isaac Drogba hefur gengið til liðs við Guingamp í frönsku úrvalsdeildinni.

Isaac er 17 ára gamall en hann er sonur Didier Drogba fyrrum leikmanns Chelsea.

Sjálfur hefur Isaac verið í unglingaliði Chelsea en hann er nú farinn í frönsku úrvalsdeildina.
Didier Drogba samdi sjálfur við Guingamp fyrir 16 árum síðane n hann skoraði 24 mörk í 50 leikjum með liðinu á sínum tíma. Þaðan fór hann til Marseille og síðan til Chelsea.

Drogba eldri birti mynd af syni sínum á Instagram eftir undirskriftina eins og sjá má hér að neðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.