Fotbolti.net
20.03.26 - 23:18
Ívan Guðjón Baldursson

Carrick fokillur: Dómarinn gaf þeim jöfnunarmarkið

Carrick fokillur: Dómarinn gaf þeim jöfnunarmarkið
Canon

Mynd: EPA

Michael Carrick þjálfari Manchester United var ekki ánægður með dómgæsluna eftir 2-2 jafntefli á útivelli gegn Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Stuart Attwell var á flautunni með Craig Pawson og Lee Betts í VAR-herberginu.
Bruno Fernandes náði forystunni fyrir Man Utd með marki úr vítaspyrnu og vildu Rauðu djöflarnir fá dæmda aðra vítaspyrnu skömmu síðar, en fengu ekki. Þess í stað skoruðu heimamenn í Bournemouth í skyndisókninni sem þeir fengu í kjölfarið.

Sjáðu atvikið: Átti Amad að fá vítaspyrnu?
TENGT EFNI

Sjáðu atvikið: Átti Amad að fá vítaspyrnu?



United náði forystunni á nýjan leik en svo skoruðu heimamenn annað jöfnunarmark eftir að Harry Maguire var dæmdur brotlegur innan vítateigs og fékk að líta rauða spjaldið í þokkabót fyrir að vera aftasti varnarmaður.

„Það var mjög mikið sem gerðist á lokakaflanum. Við vorum sterkara liðið framanaf og áttum að leiða með einu eða tveimur mörkum en nýttum ekki færin okkar. Svo fundum við loksins markið og áttum að fá aðra vítaspyrnu skömmu síðar," sagði Carrick.

„Við fengum ekki víti þegar varnarmaðurinn þeirra setti báðar hendur á leikmanninn okkar innan vítateigs, en svo fengu þeir dæmda vítaspyrnu fyrir nákvæmlega eins atvik seinna í leiknum. Dómarinn getur ekki mögulega haft rétt fyrir sér í bæði skiptin, annað hvort er þetta bæði vítaspyrna eða hvorugt. Þetta er gjörsamlega galin ákvörðun að gefa ekki eina vítaspyrnuna og dæma svo víti fyrir sama brot skömmu síðar. Þetta er fáránlegt. Þeir skoruðu jöfnunarmarkið útaf þessu.

„Ég er ekki að segja að þetta hafi ekki átt að vera vítaspyrna á Harry, en þetta átti þá líka að vera vítaspyrna hinu megin."


Sjáðu vítaspyrnudóminn og rauða spjaldið á Harry Maguire

Man Utd er í góðri stöðu í meistaradeildarbaráttunni í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar, með 55 stig eftir 31 umferð.

„Við erum vonsviknir að vinna ekki leikinn miðað við hvernig þetta spilaðist ellefu gegn ellefu. Við enduðum leikinn manni færri og þeir bættu svo miklum tíma við, ég hef ekki séð níu mínútum bætt við í langan tíma. Strákarnir stóðu sig frábærlega þó þeir væru manni færri og gáfu ekki færi á sér. Ég er ánægður með frammistöðuna en mér finnst þessi vítaspyrnuákvörðun vera gjörsamlega út úr kú."
Carrick fokillur: Dómarinn gaf þeim jöfnunarmarkið
Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.