20.03.26 - 23:03
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu atvikið: Átti Amad að fá vítaspyrnu?

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Það var mjög umdeilt atvik sem átti sér stað í 2-2 jafnteflisleik Manchester United á útivelli gegn Bournemouth í kvöld.
Bruno Fernandes náði forystunni fyrir Man Utd með marki úr vítaspyrnu og vildu Rauðu djöflarnir fá dæmda aðra vítaspyrnu þegar Amad Diallo féll til jarðar nokkrum mínútum síðar.
Stuart Attwell dómari lét leikinn halda áfram og skoruðu heimamenn í Bournemouth úr sókninni sem þeir fengu í kjölfarið. Ryan Christie var með mikið pláss við vítateigslínuna og lagði boltann snyrtilega í fjærhornið til að jafna metin, en leikmenn United voru úr stöðum eftir að hafa verið í sókn skömmu áður.
United kvartaði sárann yfir markinu en VAR-teymið ákvað að skerast ekki í leikinn þó að Diallo hafi mögulega haft eitthvað til síns máls, eins og er hægt að sjá hér fyrir neðan.
Sjáðu atvikið

TENGT EFNI
England: Mikil dramatík í fjörugu jafntefli
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 0 | 0 | 0 |
| 2 | Aston Villa | 0 | 0 | 0 |
| 3 | Bournemouth | 0 | 0 | 0 |
| 4 | Brentford | 0 | 0 | 0 |
| 5 | Brighton | 0 | 0 | 0 |
| 6 | Chelsea | 0 | 0 | 0 |
| 7 | Coventry | 0 | 0 | 0 |
| 8 | Crystal Palace | 0 | 0 | 0 |
| 9 | Everton | 0 | 0 | 0 |
| 10 | Fulham | 0 | 0 | 0 |
| 11 | Hull City | 0 | 0 | 0 |
| 12 | Ipswich Town | 0 | 0 | 0 |
| 13 | Leeds | 0 | 0 | 0 |
| 14 | Liverpool | 0 | 0 | 0 |
| 15 | Manchester City | 0 | 0 | 0 |
| 16 | Manchester Utd | 0 | 0 | 0 |
| 17 | Newcastle | 0 | 0 | 0 |
| 18 | Nott. Forest | 0 | 0 | 0 |
| 18 | West Ham | 38 | -19 | 39 |
| 19 | Burnley | 38 | -37 | 22 |
| 19 | Sunderland | 0 | 0 | 0 |
| 20 | Wolves | 38 | -41 | 20 |
| 20 | Tottenham | 0 | 0 | 0 |