Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
   fös 20. mars 2026 11:30
Elvar Geir Magnússon
Tuchel tvískiptir hópnum - Er öll von úti fyrir Trent?
Thomas Tuchel.
Thomas Tuchel.
Mynd: EPA
Trent Alexander-Arnold.
Trent Alexander-Arnold.
Mynd: EPA
Harry Maguire.
Harry Maguire.
Mynd: EPA
England er að fara að mæta Úrúgvæ og Japan í vináttulandsleikjum í komandi glugga og Thomas Tuchel valdi stóran 35 manna hóp fyrir verkefnið.

England er að búa sig undir HM í sumar og þarna fá leikmenn tækifæri til að sýna sig og sanna. Tuchel ætlar að tvískipta hópnum.

Nítján útileikmenn og fjórir markverðir koma fyrst til móts við hópinn og svo munu ellefu leikmenn til viðbóitar bætast við.

Þeir leikmenn sem munu koma síðar til móts við hópinn, og verða því með gegn Japan en ekki Úrúgvæ, eru:

Dean Henderson, Dan Burn, Marc Guehi, Ezri Konsa, Nico O'Reilly, Elliott Anderson, Declan Rice, Morgan Rogers, Anthony Gordon, Harry Kane, Bukayo Saka. - Þessir leikmenn eiga nánast öruggt sæti á HM má gera ráð fyrir.

„Þessi marsgluggi er sérstakur. Við höfum tryggt okkur á HM og þetta er síðasta tækifæri fyrir leikmenn til að sýna sig og berjast um sæti. Þess vegna skiptum við hópnum," segir Tuchel.

Á Trent Alexander-Arnold möguleika?
Enskir fjölmiðlar velta því fyrir sér hvort vonir Trent Alexander-Arnold, leikmanns Real Madrid, um að fara með á HM séu farnar. Hann er ekki valinn í hópinn en Tuchel hefur efast um varnarleikinn hjá honum.

Tuchel segist meðvitaður um hvað Alexander-Arnold getur fært liðinu og segist hafa viljað skoða aðra leikmenn í þessum glugga. Það sama eigi við um Ollie Watkins, sóknarmann Aston Villa, sem ekki er heldur valinn.

„Þetta var erfið ákvörðun. Trent er stórt nafn en ég veit hvað hann kemur með að borðinu og valdi aðra að þessu sinni. Það er hörð samkeppni um sæti í flugvélinni," segir Tuchel.

Maguire nýr fyrir mér
Harry Maguire, 33 ára varnarmaður Manchester United, hefur verið valinn í enska landsliðshópinn í fyrsta sinn undir stjórn Tuchel. Miðjumaðurinn ungi Kobbie Mainoo hjá Manchester United fær einnig kallið.

„Þessir tveir leikmenn hafa verið stór hluti af góðu gengi Manchester United síðan Michael Carrick tók við. Þetta er mitt síðasta tækifæri til að kynnast nýjum leikmönnum og sjá hvernig þeir passa inn. Harry er ekki nýr í enska landsliðinu en hann er nýr fyrir mér," segir Tuchel.

„Ég vil sjá hvernig hann er í hópnum, er í samskiptum við aðra leikmenn og hvernig hann er inni á vellinum til að geta fengið skýra sýn."

Fer varlega með Bellingham
Tuchel vonast til þess að miðjumaðurinn Jude Bellingham geti spilað mínútur gegn Japan en segist fara varlega með þennan miðjumann Real Madrid sem hefur misst af síðustu leikjum vegna vöðvameiðsla.

England mætir Úrúgvæ 27. mars og Japan 31. mars. Báðir leikirnir verða spilaðir á Wembley.
Athugasemdir
banner