20.03.26 - 11:41
Elvar Geir Magnússon
Vill sjá hvað Calvert-Lewin hefur fram að færa

Dominic Calvert-Lewin.

Mynd: EPA

James Garner, leikmaður Everton.

Mynd: EPA

Dominic Calvert-Lewin.

Mynd: EPA
England er að fara að mæta Úrúgvæ og Japan í vináttulandsleikjum í komandi glugga og Thomas Tuchel valdi stóran 35 manna hóp fyrir verkefnið.
Dominic Calvert-Lewin, sóknarmaður Leeds, snúr aftur en það eru yfir fimm ár síðan hann var valinn síðast.

TENGT EFNI
Maguire snýr aftur í enska landsliðið - Mainoo líka í hópnum
„Dominic hefur verið lengi frá vegna meiðsla, en hann hefur átt gott tímabil með Leeds," segir Tuchel.
„Hann getur gert gæfumun og er góður í að taka víti. Ég vil sjá hvað þessir leikmenn geta komið með að borðinu, líka þegar kemur að styrk og föstum leikatriðum."
Dominic Calvert-Lewin er 29 ára og hefur skorað tíu mörk í 27 úrvalsdeildarleikjum á tímabilinu.
„Þessi marsgluggi er sérstakur. Við höfum tryggt okkur á HM og þetta er síðasta tækifæri fyrir leikmenn til að sýna sig og berjast um sæti. Þess vegna skiptum við hópnum," segir Tuchel.
Meðal leikmanna sem eru valdir er James Garner hjá Everton en hann hefur ekki leikið landsleik.
„Hann er nokkuð vanmetinn leikmaður. Hann getur leyst ýmsar stöður, vinnusamur og líkamlega sterkur. Hann hjálpar leikmönnum í kringum sig. Ég vil sjá hvað hann getur," segir Tuchel um Garner.