Fotbolti.net
20.04.25 - 16:44
Brynjar Ingi Erluson

Þýskaland: Sanngjörn niðurstaða í Bæjaralandi

Þýskaland: Sanngjörn niðurstaða í Bæjaralandi
Canon

Mynd: EPA

Augsburg 0 - 0 Eintracht Frankfurt
Eintracht Frankfurt missteig sig í Meistaradeildarbaráttu sinni er það gerði markalaust jafntefli við Augsburg í 30. umferð deildarinnar í dag.

Frankfurt var kastað úr Evrópudeildinni á dögunum og því smá ryð í liðinu í leiknum í dag. Augsburg átti betri færi í fyrri hálfleiknum, en Frankfurt náði aðeins að lagfæra leik sinn í síðari.

Það lifnaði yfir leiknum á lokakaflanum. Mergim Berisha var óheppinn að skora ekki er hann skaut laglegu skoti í fjærhornið, en boltinn hafnaði í stöng og á hinum endanum bjargaði Cedric Zesiger á línu.

Kevin Trapp, markvörður Frankfurt, þurfti að taka á stóra sínum undir lok leiks. Leikur sem gat dottið báðum megin, en markalaust jafntefli niðurstaðan.

Frankfurt er í 3. sæti með 52 stig, þremur stigum á undan RB Leipzig og fjórum á undan Freiburg sem er í Evrópudeildarsæti, en Augsburg í 10. sæti með 43 stig.

Bundesliga - karlar

#LiðLmunStig
1Bayern8+1918
2Dortmund8+818
3Freiburg8+816
4RB Leipzig8+1115
5Werder8+315
6Leverkusen8+213
7Elversberg8013
8Frankfurt8-511
9Mainz8010
10Augsburg8+39
11Stuttgart8-19
12Hoffenheim8-29
13Paderborn8-39
14Köln8-39
15Hamburger8-129
16Union Berlin8-127
17Schalke 048-56
18Gladbach8-114
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.