Fotbolti.net
20.06.12 - 13:30
Daníel Freyr Jónsson

Mohamed Diame fer til West Ham (Staðfest)

Mohamed Diame fer til West Ham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Mohamed Diame mun ganga í raðir West Ham um næstu mánaðarmót eftir að hafa samþykkt þriggja ára samning.
Diame, sem er 25 ára gamall, gengur í raðir Lundúnarliðsins á frjálsri sölu frá Wigan eftir að samningur hans rann út.



Þessi senegalski miðjumaður var næstum genginn í raðir Liverpool áður en Kenny Dalglish var rekinn þaðan.



Það voru hinsvegar nýliðar Hamranna sem sigruðu kapphlaupið um Diame og verður hann þriðju kaup þeirra í sumar, á eftir þeim Stephen Henderson og Jussi Jaaskelainen.



Diame lék í þrjú ár með Wigan en þar áður lék hann með Rayo á Spáni. Að auki á hann að baki 12 landsleiki fyrir þjóð sína.

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.