Fotbolti.net
20.06.12 - 19:30
Daníel Freyr Jónsson
Ítalska deildin

Juventus kaupir Giovinco og Giaccherini (Staðfest)

Sebastian Giovinco.

Sebastian Giovinco.

Canon

Mynd: Getty Images

Juventus hefur staðfest kaup á þeim Sebastian Giovinco og Emanuele Giaccherini.
Giovinco, sem er 25 ára, lék með Parma á síðustu leiktíð en liðin deildu eignarréttinum á honum til helmings.

Ítalíumeistararnir hafa núna keypt upp hluta Parma fyrir um 11 milljónir evra og snýr Giovinco nú aftur á heimaslóðir, en hann er fæddur í Turin og hóf að æfa með Juventus einungis 9 ára gamall.

Giaccherini, sem nú er staddur með ítalska landsliðinu á EM, lék með Juventus í vetur eftir að félagið keypti 50% af samningi hans fyrir þrjár milljónir evra frá Cesena. Hann vakti talsverða athygli í liði Juventus sem fór ósigrað í gegnum deildina í vetur.

Juventus borgaði Cesena 4,25 milljónir evra fyrir seinni helming samning hans.

Ítölsku meistararnir ætla því ekki að slá slöku við fyrir næsta tímabil, en fyrir utan þessa tvö leikmenn er fastlega búist við að Kwadwo Asamoah og Mauricio Isla gangi í raðir félagsins á allra næstu dögum frá Udinese.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.