20.07.12 - 06:00
Elvar Geir Magnússon
Bræðurnir Ágúst og Hrafnkell í Augnablik (Staðfest)

Ágúst Þór Ágústsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ágúst Þór Ágústsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bræðurnir Ágúst Þór og Hrafnkell Freyr Ágústssynir eru gengnir í raðir Augnabliks, varaliðs Breiðabliks, í Kópavogi. Báðir eru uppaldir Blikar.
Ágúst er miðjumaður fæddur 1984 og hefur síðustu ár leikið með Fjölni í Grafarvogi en meiðsli hafa sett strik í reikninginn. Hann hefur áður leikið með Augnabliki auk þess sem hann þjálfaði liðið á sínum tíma.

Hrafnkell er bakvörður fæddur 1991 sem leikið hefur 28 leiki með Hamri frá Hveragerði í Íslandsmóti og bikar.
Augnablik er í harðri baráttu um að komast upp úr 3. deildinni en liðið er sem stendur í öðru sæti D-riðils.
„Við bræður höfum gengið með þetta í maganum en í fjölskylduboði ákváðum við loks að slá til. Vonandi hjálpum við Augnabliki að ná nýjum hæðum,\" sagði Hrafnkell við Fótbolta.net.