20.07.12 - 06:00
Elvar Geir Magnússon
Ásgeir og Egill Gautur lánaðir í Aftureldingu (Staðfest)

Ásgeir Örn er hér til hægri á myndinni.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Ásgeir Örn er hér til hægri á myndinni.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Fylkismaðurinn Ásgeir Örn Arnþórsson er genginn í raðir Aftureldingar á nýjan leik. Hann kemur á láni rétt eins og í fyrra þegar hann spilaði 12 leiki með Mosfellsbæjarliðinu í 2. deild.
Ásgeir er 22 ára fjölhæfur leikmaður sem leikur aðallega sem bakvörður en hann hefur spilað þrjá leiki í Pepsi-deildinni í sumar.
Ásgeir er 22 ára fjölhæfur leikmaður sem leikur aðallega sem bakvörður en hann hefur spilað þrjá leiki í Pepsi-deildinni í sumar.
Þá hefur Egill Gautur Steingrímsson einnig gengið til liðs við Aftureldingu en hann kemur á láni frá Fjölni. Egill leikur sem kantmaður en hann hefur spilað þrjá leiki með Fjölni í 1. deildinni í sumar og skorað eitt mark.
Rétt eins og Ásgeir lék hann einnig með Aftureldingu í fyrra en hann skoraði þá ellefu mörk í ellefu leikjum með liðinu. Egill er fæddur 1991.
Afturelding stefnir á að komast upp í 1. deildina en liðið er sem stendur í fimmta sæti 2. deildar.