Fotbolti.net
20.07.12 - 07:00
Sebastían Sævarsson Meyer

Sean O\'Driscoll tekinn við Nottingham Forest (Staðfest)

Sean O\'Driscoll tekinn við Nottingham Forest (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sean O\'Driscoll hefur verið ráðinn nýr knattspyrnustjóri Nottingham Forest, en þetta staðfesti félagið í gær.

Al-Hasawi fjölskyldan frá Kúveit eignaðist félagið fyrr í mánuðinum og var Steve Cotteril um leið sagt upp störfum sem stjóri félagsins.
Nýju eigendurnir ætla sér stóra hluti með félagið og telja að O\'Driscoll sé rétti maðurinn fyrir bjarta framtíð.

O\'Driscoll tók við Crawley Town þann 19 maí og hafði liðið ekki spilað leik undir hans stjórn áður en hann skrifaði undir hjá Nottingham Forest.

Þar áður stýrði hann Bournemouth og Doncaster Rovers.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.