Fotbolti.net
20.07.12 - 08:30
Magnús Már Einarsson

Sigurvin Ólafsson í Fylki (Staðfest)

Sigurvin Ólafsson í Fylki (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Miðjumaðurinn reyndi Sigurvin Ólafsson hefur gengið til liðs við Fylki eftir að hafa verið á láni hjá SR í þriðju deildinni það sem af er sumri.

Þessi 35 ára gamli leikmaður skipti yfir í Fylki í vor og mun núna hjálpa liðinu í Pepsi-deildinni út tímabilið.

Sigurvin kvaddi SR með því að skora glæsilegt skallamark í 7-2 tapi liðsins gegn ÍH í gærkvöldi.
,,Klúbburinn þakkar Venna fyrir sitt vinnuframlag og óskar honum jafnframt góðs gengis á vellinum í Pepsi deildinni. Hlökkum til að njóta krafta hans aftur,\" segir í yfirlýsingu frá SR.

Sigurvin er uppalinn hjá ÍBV en hann hefur einnig leikið með FH, KR, Fram og Gróttu hér á landi við góðan orðstír. Undanfarin tvö ár hefur Sigurvin verið mest megnis í pásu frá boltanum en hann hjálpaði Gróttu að komast upp úr 2. deildinni sumarið 2009.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.