20.07.12 - 12:34
Elvar Geir Magnússon
Völsungur fær slóvenskan framherja (Staðfest)

Úr leik hjá Völsungi í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Slóvenski framherjinn Milan Pesic er genginn til liðs við Völsung á Húsavík en hann kemur frá austurríska liðinu SV Rosegg. Pesic sem er fæddur 1980 er mikill markaskorari og hefur verið iðinn við kolann með liði sínu í Austurríki þar sem hann hefur spilað síðustu árin.
Dragan Stojanovic, þjálfari Völsungs, var að vonum ánægður með að fá þennan liðsstyrk fyrir seinni hlutann.
„Ég er mjög ánægður að fá Milan Pesic í hópinn, hann mun styrkja okkur og dreifa álaginu því það eru margir leikir og stíft program. Þetta er alvöru framherji og mjög sterkur þannig að þetta er jákvætt fyrir okkur,\" sagði Dragan við vefsíðuna 640.is.
„Við misstum Tine Zornik sem meiddist í upphafi móts og Milan er ætlað að fylla hans skarð. Við hlökkum til að fá hann hingað á Húsavík,\" sagði Dragan um félagsskiptin.
Milan Pesic mun spila sinn fyrsta leik 28.júlí þegar Völsungur fær Hamar í heimsókn á bæjarhátíð Húsvíkinga Mærudögum.
Völsungur er í öðru sæti 2. deildar en tvö efstu liðin komast upp í 1. deild eins og venjan er.

Heimild: Græni herinn/640.is