20.07.12 - 16:05
Elvar Geir Magnússon
Ásgeir Þór Magnússon lánaður í Leikni (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Markvörðurinn Ásgeir Þór Magnússon hefur verið lánaður frá Val yfir í Leikni í Breiðholti. Ásgeir hefur leikið fjóra leiki með Val í Pepsi-deildinni í sumar.
Ásgeir er uppalinn hjá Leikni og mun leika með liðinu á sunnudag gegn Þór í 1. deildinni en Eyjólfur Tómasson, aðalmarkvörður Leiknis, tekur þá út leikbann.

Ásgeir var valinn besti leikmaður 2. deildar í fyrra þegar hann var lánaður til Hattar og fór upp með liðinu.
Ásgeir hefur leikið með öllum yngri landsliðum Íslands en hann hefur leikið tvo U21-landsleiki.
Hann missti stöðu sína hjá Val þegar Ólafur Þór Gunnarsson fékk félagaskipti.