Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 20. júlí 2018 11:45
Ívan Guðjón Baldursson
Brighton krækir í Percy Tau (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Brighton var að staðfesta komu suður-afríska kantmannsins Percy Tau til félagsins.

Tau kemur frá Mamelodi Sundowns í suður-afrísku deildinni þar sem hann hefur verið lykilmaður undanfarin tvö ár.

Hann er sjöundi leikmaðurinn sem gengur til liðs við Brighton í sumar en leikmenn á borð við Yves Bissouma, Bernardo og Florin Andone eru komnir til félagsins.

Tau er 24 ára gamall og hefur gert fimm mörk í tólf landsleikjum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner