Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 20. júlí 2018 17:37
Ívan Guðjón Baldursson
Danny Ward til Leicester (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Leicester City er búið að staðfesta kaupin á Danny Ward, 25 ára markverði Liverpool.

Ward á að veita Kasper Schmeichel samkeppni um byrjunarliðssæti og vera til taks í bikarkeppnum.

Liverpool var með fjóra markverði eftir komu Alisson Becker og þurfti að losa sig við einn. Mögulegt er að Simon Mignolet verði einnig seldur í sumar.

Kaupverðið er óuppgefið en það er talið nema rúmlega 12 milljónum punda og 20% af næstu sölu á leikmanninum.

Ward á tvo úrvalsdeildarleiki að baki fyrir Liverpool og fjóra landsleiki fyrir Wales.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner