Finnski leikmaðurinn Elias Alexander Tamburini hefur skrifað undir samning við Knattspyrnudeild Grindavíkur.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.
Elias er 23 ára vinstri bakvörður og á leiki með U-17 og U-19 landsliðum Finnlands.
Elias hefur æft með Grindavík síðan um miðjan mai en hann kom til Grindavíkur frá USA þar sem hann var í námi með Jóni Ingasyni leikmanni Grindvíkinga.
Athugasemdir