Gylfi Veigar Gylfason hefur gengið til liðs við Kára frá ÍA. Gylfi er 25 ára varnarmaður sem er uppalinn á Skaganum.
Hann er kominn með leikheimild með Kára og getur því spilað sinn fyrsta leik með Kára í sumar á sunnudaginn þegar liðið heimsækir Fjarðabyggð fyrir austan.
Hann er kominn með leikheimild með Kára og getur því spilað sinn fyrsta leik með Kára í sumar á sunnudaginn þegar liðið heimsækir Fjarðabyggð fyrir austan.
Gylfi Veigar hóf meistaraflokksferil sinn með Kára sumarið 2013 en hefur síðan þá spilað með ÍA bæði í Pepsi og Inkasso deildinni. Hann hefur þó ekkert leikið í sumar.
Káramenn eru í 2. sæti 2. deildarinnar með 22 stig, þremur stigum á eftir toppliði Aftureldingu.
Athugasemdir