HK-ingar hafa fengið Mána Austmann Hilmarsson frá Stjörnunni fyrir toppbarátunna í Inkasso-deildinni.
Máni hefur leikið með ÍR-ingum fyrri hluta sumars í Inkasso-deildinni á láni frá Stjörnunni en nú hefur hann skipt yfir í HK.
Máni hefur leikið með ÍR-ingum fyrri hluta sumars í Inkasso-deildinni á láni frá Stjörnunni en nú hefur hann skipt yfir í HK.
HK-ingar eru í 2. sæti deildarinnar, stigi á eftir Þór en eiga leik til góða gegn Magna á morgun á Grenivík klukkan 16:00.
Máni verður löglegur með HK-ingum í þeim leik. Hann lék níu leiki með ÍR-ingum í Inkasso deildinni í sumar og skoraði í þeim leikjum tvö mörk. ÍR-ingar eru í 11. sæti deildarinnar í mikilli fallbaráttu.
Máni er annar leikmaðurinn sem HK fær frá Stjörnunni núna í vikunni því Hörður Árnason gekk í raðir HK á mánudaginn.
Athugasemdir