20.07.18 - 16:15
Ívan Guðjón Baldursson
Nottingham Forest fær Jack Colback (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Nottingham Forest hefur tryggt sér þjónustu Jack Colback út tímabilið. Hann kemur á lánssamning, með kaupmöguleika, frá Newcastle United.
Colback var lánaður til Nottingham á síðari hluta síðasta tímabils og þótti standa sig vel.
Hann hefur gríðarlega mikla reynslu úr ensku boltanum og á yfir 200 úrvalsdeildarleiki að baki fyrir Sunderland og Newcastle.
Colback er tíundi leikmaðurinn sem gengur til liðs við Nottingham í sumar er félagið reynir að komast upp í ensku úrvalsdeildina í fyrsta sinn í 20 ár.