Sofiane Boufal mun spila fyrir Celta Vigo í spænska boltanum út tímabilið.
Boufal er 24 ára sóknartengiliður sem kemur á lánssamning frá Southampton.
Hann hefur gert fjögur mörk í 59 keppnisleikjum fyrir Southampton og á fimm landsleiki að baki fyrir Marokkó.
Celta endaði í 13. sæti spænsku deildarinnar á síðasta tímabili og sárvantar skapandi miðjumann sem getur spilað framarlega.
Athugasemdir