Fotbolti.net
20.07.26 - 15:51
Elvar Geir Magnússon

Hegðunin í úrslitaleiknum skammarlegur blettur á ferli Messi

Lionel Messi að klaga til dómarans.

Lionel Messi að klaga til dómarans.

Canon

Mynd: EPA

Jeremy Cross, íþróttafréttamaður Mirror, segir að hegðun Lionel Messi í úrslitaleik HM hafi verið til skammar og sé ljótur blettur á ferli hans. Hann segir Messi hafa tekið þátt í að beita bellibrögðum til að reyna að hafa áhrif á dómara leiksins.

Messi reyndi að fá Marc Cucurella, varnarmann Spánar, rekinn af velli fyrir að halda fyrir munninn þegar hann sagði eitthvað við sig.
Sjáðu HM markið: Það helsta úr leiknum þegar Spánn vann HM
TENGT EFNI

Sjáðu HM markið: Það helsta úr leiknum þegar Spánn vann HM

„Undanfarnar vikur hefur Messi virkað eins og sömu reglur gildi ekki um hann eins og aðra þegar kemur að dómurum og dómgæslu almennt," segir Cross.

Messi reyndi að fá Slavko Vincic dómara til að reka Cucurella af velli fljótlega eftir að Enzo Fernandez fékk rauða spjaldið.

„Cucurella reyndi að eiga ræða við Messi með höndina fyrir munninum. Þetta var reyndar ekki heil hönd, heldur bara nokkrir fingur. Messi klagaði hann til Vincic. Að Messi skuli reyna að nýta sér þetta sér í hag er ekkert annað en skammarlegt, vandræðalegt og niðurlægjandi."

„Messi lét eins og frekst barn, barn sem hleypur til kennarans til að klaga. Sjálfsvirðing hans og reisn biðu hnekki. Það var hreint út sagt ömurlegt að verða vitni að þessu."

Hegðunin í úrslitaleiknum skammarlegur blettur á ferli Messi
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.