Fotbolti.net
20.07.26 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Otamendi og Rodri tókust á - „Varst að grenja alla vikuna"

Otamendi og Rodri tókust á - „Varst að grenja alla vikuna"
Canon

Mynd: EPA

Það var gríðarlega mikill hasar eftir að flautað hafði verið til leiksloka í leik Spánar og Argentínu í úrslitum á HM í gær.

Spánn fór með sigur af hólmi og vann annan heimsmeistaratitilinn í sögunni. Sá fyrsti kom fyrir 16 árum síðan.
Leandro Paredes missti algjörlega stjórn á skapi sínu og réðst á mann og annan.

Þá var Nicolas Otamendi ekki sáttur við Rodri og sakaði hann um að hafa áhrif á dómarana í aðdraganda leiksins. Argentínumenn tóku hart á Spánverjum og Enzo Fernandez fékk rautt spjald undir lok fyrri hálfleiks.

„Ég hef alls engar áhyggjur af árásargirni í fótbolta. Ef það er umborið og dómarinn vinnur vinnuna sína, þá hef ég ekkert á móti því. Það er rétt að í undanförnum leikjum höfum við séð hluti sem hafa komið okkur mjög á óvart, aðgerðir sem fá að fara óáreittar. Sérstaklega gegn Argentínu, liði sem skilur eftir sig mikil spor," sagði Aymeric Laporte m.a. í aðdraganda leiksins.

Riflildi Otamendi og Rodri eftir leikinn heyrðist í argentíska sjónvarpinu.

„Þú varst að grenja alla vikuna. Þú og Laporte, þið báðir. Þú varst að grenja út af dómurunum, vinur minn," sagði Otamendi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.