Fotbolti.net
20.07.26 - 19:20
Ívan Guðjón Baldursson

Van Bommel líklegastur til að taka við Belgíu

Van Bommel líklegastur til að taka við Belgíu
Canon

Mynd: EPA

Hollendingurinn Mark van Bommel er talinn vera líklegasti arftaki Rudi Garcia í landsliðsþjálfarastarfi Belgíu.
Rudi Garcia hættur með Belgíu (Staðfest)
TENGT EFNI

Rudi Garcia hættur með Belgíu (Staðfest)

Garcia fékk ekki nýjan samning hjá Belgíu eftir heimsmeistaramótið, þar sem lærlingar hans duttu út gegn Spáni í 8-liða úrslitum.

Belgar gerðu óvænt jafntefli við Íran og Egyptalandi í riðlakeppninni áður en þeir völtuðu yfir Nýja-Sjáland til að tryggja sér toppsæti G-riðils. Þeir voru heppnir að leggja Senegal naumlega að velli í 32-liða úrslitum áður en þeir rúlluðu yfir heimamenn í liði Bandaríkjanna í 16-liða úrslitum. Spánverjar voru þó alltof stór biti.

Van Bommel ætti að vera fótboltaunnendum kunnugur eftir farsælan feril sem atvinnumaður, þar sem hann lék fyrir Fortuna Sittard og PSV Eindhoven í heimalandinu ásamt því að spila fyrir Barcelona, FC Bayern og AC Milan utan landsteinanna.

Van Bommel var varnarsinnaður miðjumaður og skoraði 10 mörk í 79 landsleikjum fyrir Holland. Hann er 49 ára gamall og hefur áður stýrt PSV, Wolfsburg og Royal Antwerp á þjálfaraferlinum.

Sébastien Pocognoli, Philippe Clement og Kasper Hjulmand koma einnig til greina. Clement þjálfar Norwich í Championship deildinni en Pocognoli og Hjulmand eru án félags eftir að hafa stýrt AS Mónakó og Bayer Leverkusen á síðustu leiktíð.
Van Bommel líklegastur til að taka við Belgíu
Canon

Mynd: Ajax

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.