Fotbolti.net
20.07.26 - 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

West Ham sagði aftur nei - Kostar 50 milljónir

West Ham sagði aftur nei - Kostar 50 milljónir
Canon

Mynd: EPA

West Ham hefur samkvæmt heimildum Sky Sports hafnað öðru tilboði ítalska félagsins Roma í hollenska kantmanninn Crysencio Summerville.

Sagt er að Roma hafi boðið 39 milljónir punda (46 milljónir evra) en Roma vill 50 milljónir fyrir leikmanninn. Erlendum miðlum ber reyndar ekki saman hvort að West Ham vilji 50 milljónir evra eða 50 milljónir punda fyrir Summerville.
Hann er 24 ára og verður líklega seldur frá Hömrunum í sumar eftir fall liðsins úr úrvalsdeildinni. Al Hilal, Galatasaray, Manchester United, Fulham, og AC Milan hafa einnig verið orðuð við Summerville.

Hann er ættaður frá Súrínam en er hollenskur landsliðsmaður sem West Ham fékk frá Leeds árið 2024. Hann hefur skorað tvö mörk í sex leikjum fyrir Holland.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.