Fotbolti.net
20.08.26 - 14:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Arteta alveg viss um framtíð Lewis-Skelly

Arteta alveg viss um framtíð Lewis-Skelly
Canon

Mynd: EPA

Myles Lewis-Skelly verður pottþétt áfram hjá Arsenal að sögn Mikel Arteta, stjóra liðsins.

Englendingurinn hefur verið orðaður í urtu í sumar, orðaður bæði við Chelsea og Manchester United sem fylgjast með stöðu mála.
En Arteta er 100% viss um að sinn maður verði áfram leikmaður Arsenal þegar glugganum verður skellt í lás.

„100%," sagði Arteta einfaldlega.

Hann var einnig spurður út í framtíð Gabriel Marteinelli, Gabriel Jesus og Ethan Nwaneri.

„Án þess að tala um nein smáatriði, þá er þetta eitthvað sem við erum að vinna í með hverjum og einum. Ég vil hafa hópinn eins stóran og mögulegt er því við vitum hvað við erum að berjast fyrir, við lærum aftur af fortíðinni. Sérstaklega í fyrra þegar við vorum með meiðsli á tveimur eða þremur stöðum á vellinum. Því stærri sem við höfum hópinn, því betra. En leikmennirnir verða að finna að þeir séu metnir að verðleikum og mikilvægir," segir stjóri ensku meistaranna.

Arsenal tekur á móti Coventry annað kvöld í fyrstu umferð úrvalsdeildarinnar.
Arteta alveg viss um framtíð Lewis-Skelly
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.