Fotbolti.net
20.08.26 - 16:53
Elvar Geir Magnússon

Sesko væntanlega með gegn Hull

Sesko væntanlega með gegn Hull
Canon

Mynd: EPA

Slóvenski sóknarmaðurinn Benjamin Sesko verður væntanlega í leikmannahópi Manchester United gegn nýliðum Hull í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar á laugardag.

Sesko hefur verið að jafna sig á meiðslum og spilaði ekkert á undirbúningstímabilinu. Hann hefur hinsvegar snúið aftur til æfinga að fullu og er líklegt að hann byrji á bekknum.
Spáin fyrir enska - 4. sæti
TENGT EFNI

Spáin fyrir enska - 4. sæti

Michael Carrick stjóri United fór yfir stöðuna á hópnum sínum á fréttamannafundi í dag. Óvissa ríkir um Mason Mount fyrir leikinn á laugardag og þá er Matthijs de Ligt frá vegna meiðsla.

„De Ligt hefur verið lengi frá en hann er byrjaður að æfa og það er frábært að fá hann aftur. Hann er á réttri leið. Mason Mount er nálægt endurkomu en leikurinn um helgina gæti komið aðeins of snemma," segir Carrick.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.