20.09.26 - 19:58
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Gísli Eyjólfs: Mér gæti eiginlega ekki verið meira sama
,,Búnir að stela af okkur sex stigum"
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Virkilega gaman að vinna. Það er ekkert betra en sigurtilfinningin," sagði Gísli Eyjólfsson, leikmaður ÍA, eftir öruggan sigur á Breiðabliki í dag.
Gísli er fyrrum leikmaður Breiðabliks en hann fagnaði vel þegar hann kom Skagamönnum yfir.
„Mér gæti eiginlega ekki verið meira sama. Það er alltaf gaman að skora og það gerist ekki oft. Þegar það gerist þá nýtir maður tækifærið og fagnar almennilega," sagði Gísli.
„Það er skemmtilegra að vinna en að tapa og því fer maður í leiki til að vinna. Þeir eru búnir að stela sex stigum af okkur í sumar þannig við höfðum harma að hefna."
Mikil umræða hefur skapast um mótafyrirkomulagið en Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, hraunaði yfir það í viðtali við RÚV á dögunum. Gísli var spurður út í sitt álit.
„Ég er ekki jafn góður í kjaftinum eins og Rúnar. Ég tek undir allt sem Rúnar sagði, hann kom þessu mjög vel frá sér," sagði Gísli.