Fotbolti.net
20.09.26 - 20:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Brynjar: Okkur finnst við skulda fólkinu í Garðabænum það

Auglýsing
Brynjar Kristmundsson.

Brynjar Kristmundsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Það er vont að fá á sig fimm mörk. Þetta var skrítinn fyrri hálfleikur og mér fannst við vera 'on it' sérstaklega með boltann. En í hvert skipti sem þeir komust nálægt markinu okkar, þá skoruðu þeir," sagði Brynjar Kristmundsson, einn af þjálfurum Stjörnunnar, eftir 5-2 tap gegn FH í Bestu deildinni í dag.
Lestu um leikinn: FH 5 - 2 Stjarnan
Stjarnan var mun meira með boltann og með fleiri snerting inn í teig andstæðingsins í fyrri hálfleik en samt voru þeir 4-0 undir.

„Þeir gerðu vel að verja markið sitt þegar við komumst inn í teiginn. Ef þú hleypir FH upp í skyndisóknir sem er þeirra mesti styrkleiki, þá er það drulluerfitt. Við vorum aðeins of mjúkir og seinir, þegar þeir voru að sækja hratt. FH er kaótískt lið sem sparkar boltanum mikið upp í loft og reynir að hirða seinni bolta, þeir voru ofan á þar og náðu að refsa okkur."

Stjarnan er langt frá fallsvæðinu og hefur ekki að miklu að spila í neðri hluta Bestu deildarinnar. Núna er framundan þriggja vikna landsleikjahlé.

„Það er þreytt að vera að fara í svona langt frí. Ég held að allir sem koma nálægt þessu liði séu staðráðnir í að enda mótið almennilega. Okkur finnst við skulda fólkinu í Garðabænum það að koma inn í alla leiki á fullu gasi og enda mótið með eins mörg stig og mögulegt er," sagði Brynjar.

Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.