Steve Bruce, stjóri Newcastle, er allt annað en ánægður með umboðsmann Miguel Almiron. Umboðsmaðurinn sagði frá því í vikunni að Almiron væri farinn frá Newcastle ef ekki væri fyrir kórónuveiruna.
Umboðsmaðurinn sagði einnig frá því að Almiron gæti farið frá félaginu næsta sumar. Bruce var ekki hirfinn af þessu.
Umboðsmaðurinn sagði einnig frá því að Almiron gæti farið frá félaginu næsta sumar. Bruce var ekki hirfinn af þessu.
„Þessi ummæli voru það fáránleg að ég missti ekki af þeim. Af hverju ættir þú að setja skjólstæðing þinn í þessa stöðu?" sagði Bruce.
„Hann er frábær strákur en umboðsmaður hans lætur margt í ljós. Hann (Almiron) er ekki kominn aftur úr landsliðsverkefni og ég mun tala við hann."
„Hann er ótrúlega mikill atvinnumaður og frábær strákur. Hann er með frábært hugarfar og virðir alla hjá félaginu."
„Umboðsmaðurinn er áhugamaður sem er að leitast eftir því að fá pening fljótt."
Athugasemdir