Fotbolti.net
21.01.20 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Sjáðu viðbrögð Gary Neville þegar Martial klúðraði

Sjáðu viðbrögð Gary Neville þegar Martial klúðraði
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United heimsótti erkifjendur sína í Liverpool á sunnudaginn. Heimamenn höfðu betur og eru svo gott sem búnir að tryggja sér Englandsmeistaratitilinn þó tímabilið sé aðeins rétt rúmlega hálfnað.
Liverpool komst yfir snemma leiks og var Anthony Martial nálægt því að jafna í síðari hálfleik en fór illa með gott færi og skaut knettinum yfir markið.

Gary Neville var á vellinum, ásamt Jamie Carragher og fleirum, fyrir hönd Sky Sports. Hann var ekki sáttur þegar Martial klúðraði færinu og brást við með að kýla í borðið fyrir framan sig.

Hér fyrir neðan má sjá það helsta úr leik Liverpool og Man Utd og viðbrögð Neville við klúðrinu.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.