Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 21. febrúar 2021 21:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Shoretire þreytti frumraun sína gegn hinu uppeldisfélaginu
Mynd: Getty Images
Shola Shoretire er einn efnilegasti leikmaður Manchester United. Hann er sautján ára gamall vængmaður sem fæddur er í Nígeríu. Hann flutti ungur að árum til Newcastle með fjölskyldu sinni og vill svo til að Newcastle var einmitt andstæðingur Man Utd í kvöld.

Shoretire kom inn á þegar skammt var eftir af leiknum í kvöld og lék sínar fyrstu mínútur fyrir aðallið Rauðu djöflana.

Shoretire gekk í raðir Man Utd árið 2014 frá Newcastle og hefur verið viðloðinn varalið Man Utd síðasta árið eða svo. Hann framlengdi samning sinn við félagið nú fyrr í febrúar.

Hann varð árið 2019 yngsti leikmaðurinn til að taka þátt í leik í Evrópukeppni unglingaliða þegar hann kom inn á, 14 ára og 314 daga gamall í leik með U19 ára liði United.

Shoretire á enn eftir að gera upp við sig hvort hann vill spila fyrir Nígeríu eða England í framtíðinni.


Athugasemdir
banner
banner
banner