Bruno Fernandes fyrirliði Manchester United var vonsvikinn eftir jafntefli gegn Bournemouth í úrvalsdeildinni í gærkvöldi.
Man Utd náði forystunni í tvígang en í bæði skiptin tókst Bournemouth að jafna til að bjarga stigi. Afar umdeild dómaraákvörðun réði úrslitum í leiknum og kvartaði Michael Carrick sárann að leikslokum. Bruno tók í svipaða strengi.
20.03.2026 23:18
Carrick fokillur: Dómarinn gaf þeim jöfnunarmarkið
„Ég er vonsvikinn því við gerðum nóg til að ná í öll þrjú stigin en að lokum þurftum við að kveljast á lokamínútunum til að tapa ekki leiknum," sagði Bruno, en United endaði leikmanni færri eftir að Harry Maguire fékk dæmt á sig rautt spjald og vítaspyrnu fyrir klaufalegt brot.
„Það var pirrandi að komast ekki í 2-0 þegar við áttum að fá vítaspyrnu en fengum ekki. Það er fáránlegt að við höfum ekki fengið vítaspyrnu þarna og svo fá þeir vítaspyrnu fyrir svipað atvik seinna í leiknum. Þetta er galið. Ég skil að það er erfitt fyrir dómarann að gefa tvær vítaspyrnur til sama liðs með svona stuttu millibili en þá skil ég ekki hvers vegna VAR skerst ekki í leikinn?
„Ef VAR skerst ekki inn í leikinn á þessum tímapunkti þá eiga þeir að skerast inn í leikinn í seinna skiptið þegar Maguire er dæmdur brotlegur og snúa þeirri ákvörðun til baka. Það er ekki hægt að annað brotið sé vítaspyrna en hitt ekki, þetta er sama brot.
„Amad er að koma sér fyrir í skotstöðu og varnarmaðurinn ýtir augljóslega í hann með báðum handleggjum, hann er tekinn algjörlega úr jafnvægi. Þetta er pirrandi fyrir lágvaxna leikmenn að vera kallaðir aumir fyrir að missa jafnvægið, en svo þegar sama staða kemur upp hjá hávaxnari leikmönnum er dæmt brot.
„Að mínu mati þá átti dómarinn að dæma vítaspyrnu í báðum tilvikum. Það hefði breytt leiknum hefðum við fengið aðra vítaspyrnu á þessum tímapunkti."
Bruno segir að það þýði ekkert að staldra við þessi úrslit, nú er landsleikjahlé framundan og svo eru mikilvægir leikir á lokakafla tímabilsins.
„Úrvalsdeildin er mjög erfið og það er mikil samkeppni. Aston Villa, Liverpool og Chelsa eru nálægt okkur og markmiðið okkar er að safna sem flestum stigum út tímabilið. Við verðum að ná í sigra úr næstu leikjum."
Maguire tjáði sig einnig að leikslokum og greip í svipaða strengi og liðsfélagi sinn og þjálfari, þar sem hann sagðist ekki skilja hvernig annað atvikið hafi endað með vítaspyrnudómi en ekki hitt.
Andoni Iraola, þjálfari Bournemouth, var ekki sammála Bruno, Maguire og Carrick eftir jafnteflið.
20.03.2026 23:39
Iraola: Amad átti aldrei að fá vítaspyrnu
Athugasemdir




