21.03.26 - 16:43
Ívan Guðjón Baldursson
Ekitike gæti spilað næsta leik - Isak með gegn PSG

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Arne Slot svaraði spurningum eftir tap Liverpool gegn Brighton í ensku úrvalsdeildinni í dag.
„Það er alltaf pressa hjá Liverpool. Það er pressa á mér og það er pressa á leikmönnum. Það er eðlilegt," sagði Slot.

„Við erum komnir í 8-liða úrslit FA bikarsins og Meistaradeildarinnar en við verðum að passa upp á að enda í meistaradeildarsæti í úrvalsdeildinni. Það er mikilvægt."
Liverpool er að glíma við mikil meiðslavandræði í sóknarlínunni og fór Hugo Ekitike meiddur af velli eftir átta mínútur í Brighton. Hann virðist þó ekki vera kominn á meiðslalistann þar sem má finna stjörnurnar Mohamed Salah og Alexander Isak.
„Ég held að Hugo (Ekitike) væri klár í að spila annan fótboltaleik á morgun ef við þyrftum þess. Þetta eru ekki alvarleg meiðsli, hann lenti í árekstri og var með 'dauðan fótlegg'.
„Alexander Isak verður í liðinu sem mætir Paris Saint-Germain í 8-liða úrslitum, það er öruggt. Ég er 100% viss um að stuðningsmenn muni sjá hans allra bestu hliðar á næstu leiktíð, við erum að reyna að koma honum í gott stand fyrir lokahnykk tímabilsins."
Alisson Becker var ekki á milli stanga Liverpool þar sem hann er að glíma við ný meiðsli. Óljóst er hvenær hann snýr aftur á völlinn. Í fyrstu var talið að þetta væru smávægileg vöðvameiðsli en Alisson segist sjálfur búast við að vera frá keppni 'í einhvern tíma'.

TENGT EFNI
Slot: Það er alltaf pressa hjá Liverpool

England: Welbeck sá um Liverpool sem er í veseni

Mynd: EPA