Tipsbladet í Danmörku fjallar um frábæra frammistöðu FC Midtjylland í Evrópudeildinni þar sem liðið var slegið úr leik í 16-liða úrslitum eftir vítaspyrnukeppni gegn Nottingham Forest.
Nokkrir leikmenn Midtjylland hafa vakið athygli á sér víða um Evrópu með frammistöðum sínum og er Elías Rafn Ólafsson markvörður einn þeirra.
Elías Rafn hefur verið frábær á milli stanga Midtjylland og er sá markvörður í keppninni sem hefur varið flestar marktilraunir, eða 46 talsins.
Hann er auk þess einn af markvörðunum sem hefur haldið oftast hreinu. Midtjylland fékk aðeins mark á sig í fimm leikjum af tíu í Evrópudeildinni.
Elías er 26 ára gamall og með rúmlega þrjú ár eftir af samningi við Midtjylland. Hann er orðinn aðalmarkvörður íslenska landsliðsins með Hákon Rafn Valdimarsson til vara, þar sem Hákoni Rafni hefur ekki tekist að ryðja sér leið inn í byrjunarliðið hjá Brentford í ensku úrvalsdeildinni.
13.03.2026 11:56
Verður Elías næsti Íslendingur í ensku úrvalsdeildina?
Athugasemdir




