Fotbolti.net
21.03.26 - 19:40
Ívan Guðjón Baldursson

England: Everton skellti Chelsea

England: Everton skellti Chelsea
Canon

Mynd: EPA

Everton 3 - 0 Chelsea
1-0 Beto ('33 )
2-0 Beto ('62 )
3-0 Iliman Ndiaye ('76 )
Everton og Chelsea áttust við í ensku úrvalsdeildinni í dag og skoraði Beto eina markið í fyrri hálfleik. Everton var sterkara liðið í fyrri hálfleik en tókst ekki að skora fyrr en Chelsea virtist vera að komast inn í leikinn.

Vörnin hjá Chelsea hélt vel í hálftíma en svo skoraði Beto eftir frábæra stungusendingu frá James Garner.

Chelsea reyndi að svara fyrir sig en Jordan Pickford varði meistaralega til að halda forystunni fyrir heimamenn, svo staðan var 1-0 í leikhlé.

Í síðari hálfleik gerðu heimamenn vel að drepa hraða leiksins niður og nýta þau fáu færi sem sköpuðust. Everton virtist líða mjög vel á vellinum á meðan gestirnir frá London fundu engar lausnir.

Chelsea fékk nokkur góð færi en Pickford varði meistaralega.

Beto tvöfaldaði forystu Everton á 62. mínútu eftir að Chelsea tapaði boltanum klaufalega á miðjunni og innsiglaði Iliman Ndiaye magnaðan 3-0 sigur með afar snoturri afgreiðslu korteri síðar. Robert Sánchez markvörður Chelsea átti að gera betur á milli stanganna.

Everton er í sjöunda sæti úrvalsdeildarinnar með 46 stig eftir þennan sigur, aðeins tveimur stigum á eftir Chelsea í evrópubaráttunni.
England: Everton skellti Chelsea
Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.