Fotbolti.net
21.03.26 - 21:59
Ívan Guðjón Baldursson

England: Leeds fjarlægist fallsvæðið og Brentford nálgast Evrópu

England: Leeds fjarlægist fallsvæðið og Brentford nálgast Evrópu
Canon

Mynd: EPA

Leeds 0 - 0 Brentford
Leeds United og Brentford áttust við í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdedildinni og úr varð mikill baráttuslagur.

Leikurinn einkenndist af miðjumoði þar sem hvorugu liði tókst að skapa sér góð færi. Í síðari hálfleik var útlit fyrir að Caoimhín Kelleher þyrfti að fara útaf vegna meiðsla svo Hákon Rafn Valdimarsson fór að hita upp, en Kelleher þurfti að lokum ekki skiptingu.

Liðin skiptust á að halda boltanum en náðu aldrei að brjóta skipulagðar varnir hvors annars á bak aftur, svo lokatölur urðu 0-0.

Leeds var sterkara liðið yfir heildina litið en bæði lið fara heim með stig og færa sig nær markmiðum sínum.

Leeds er núna fjórum stigum frá fallsæti á meðan Brentford er aðeins tveimur stigum frá Chelsea, sem tapaði gegn Everton í dag, í evrópubaráttunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.