Brunaútsala hjá Hömrunum - Tottenham og Man Utd slúður - Rashford til Real?
Telma Steindórs: Við höfum getað gert miklu betur
Ian Jeffs: Þetta var ekki alveg sanngjarnt
Óskar Smári: Við missum ekki svefn yfir því
Guðni: Það væri frábært ef þetta væri svona í öllum leikjum
Jóhann Kristinn: Eina sem við getum gert er að skammast okkar í kvöld
Matti er stoltur að hafa haldið hreinu tvo leiki í röð
Einar hefur áhyggjur af stöðunni: Stelpurnar hafa lent í þessu áður
Jón Óli léttur: Mannandskotinn kemur úr logninu úr miðbæ Reykjavíkur
Gylfi Tryggva: Ógeðistilfinning efst í kollinum
Rúnar Páll: Höfum verið betra liðið í flestum þessum leikjum
Daniel Badu: Misstum haus og þeir refsuðu
Nenad: Mjög kærkomið
Ósáttur Davíð Smári: Held að það sé best að halda kjafti
Heimir Guðjóns ánægður: Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
   lau 21. mars 2026 18:00
Hafþór Örn Laursen
Heimir: Vel mannaðir, með frábæran þjálfara og ætla sér stóra hluti
Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis
Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fylkir vann hreint út sagt ótrúlegan sigur á KR í úrslitum Lengjubikarsins, leikurinn fór 4-4 í venjulegum leiktíma, og svo 4-3 í vítaspyrnukeppni.

„Mér fannst við ekki góðir í fyrri hálfleik. KR-ingar voru miklu betri, yfirmönnuðu hægri vörnina okkar og svæðið milli varnar og miðju. Við vorum heppnir að sleppa með 2-3 í fyrri hálfleik og vorum hálf sofandi. Seinni hálfleikur var miklu betri varnar- og sóknarlega, þorðum aðeins að halda í boltann, náðum að skapa okkur góða stöðu og vorum betri varnarlega.''

Það er rétt rúmur mánuður í Lengjudeildina og Fylkismönnum er spáð 3. sæti.

Lestu um leikinn: Fylkir 8 -  7 KR

„Það hafa verið framfarir í undirbúningnum hjá liðinu. Okkur vantar pínu stöðugleika, vinnum vel og töpum illa á milli og við höfum góðan tíma til að ná stöðugleika. Þessi leikur hjálpar okkur, unnum mjög gott KR lið, sem er vel mannað með frábæran þjálfara og ætla sér stóra hluti í sumar sem segir okkur að við séum á réttri leið en hlutirnir eru fljótir að breytast í fótbolta og við þurfum að vera klárir á æfingasvæðinu.

„Markmiðið er bara næsti leikur. Liðið okkar er þannig að það þýðir ekkert að hugsa lengra. Næst eigum við bikarleik gegn KV, við fögnum í kvöld og byrjum að hugsa um hann á morgun og það er alveg nóg fyrir okkur að hugsa um það.''

Lestu um leikinn.
Slapp
banner
banner