Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 21. mars 2026 16:55
Ívan Guðjón Baldursson
Liverpool með fleiri töp en síðustu tvö tímabil samanlagt
Mynd: EPA
Liverpool tapaði 2-1 gegn Brighton í ensku úrvalsdeildinni í dag og var það tíunda tap liðsins á úrvalsdeildartímabilinu.

   21.03.2026 14:43
England: Welbeck sá um Liverpool sem er í veseni


Þetta er í fyrsta sinn í áratug sem Liverpool tapar tíu leikjum á einu deildartímabili, en það gerðist síðast leiktíðina 2015-16.

Til að setja fjölda tapleikja í samhengi þá tapaði Liverpool aðeins 8 leikjum samanlagt tímabilin 2023-24 og 2024-25, eða fjórum leikjum á leiktíð.

Liverpool er ríkjandi Englandsmeistari og styrkti leikmannahópinn sinn umtalsvert síðasta sumar eftir að hafa unnið deildina.

Liðið er þrátt fyrir það aðeins í fimmta sæti sem stendur og er í hættu á að missa af meistaradeildarsæti fyrir næstu leiktíð.

   21.03.2026 16:38
Slot: Það er alltaf pressa hjá Liverpool

Athugasemdir
banner
banner