Emil Atlason var tekinn af velli á 36. mínútu í viðureign Stjörnunnar og FH á laugardag. Emil skoraði tvö mörk í fyrstu umferðinni, en ekki var um alvarleg meiðsli að ræða heldur forvarnarstarfsemi.
„Ég held að hann sé ágætur, þetta var meira að passa upp á að þetta yrði ekki neitt slæmt. Hann var aðeins farinn að finna til,“ sagði Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, í viðtali eftir leik.

Inn fyrir Emil kom Andri Rúnar Bjarnason og skoraði hann sigurmark leiksins á 86. mínútu.
„Við erum með frábæran framherja í Andra Rúnari sem hefur gert vel, ótrúlegur leiðtogi í þessum hóp, hvort sem það er innan sem utan vallar,“ sagði Jökull jafnframt.
Stjarnan heimsækir Víking í stórleik 3. umferðar á fimmtudaginn. Garðbæingar eru með fullt hús stiga eftir tvær umferðir.
Andri Rúnar skoraði sigurmark Stjörnunnar gegn FH! ?? #bestadeildin pic.twitter.com/2gG6f2HSDz
— Besta deildin (@bestadeildin) April 18, 2026